12.1.2009 | 18:19
Medúsa flekinn
Það er ekki seinna vænna að flagga áramótamynd hér á blogginu. Ég byggði áramótamyndina fyrir Viðskiptablaðið á einhverju mesta snilldarverki listasögunnar, Medúsa flekanum eftir Géricault.
Þó ég nái aðeins að enduróma brotabrot af snilldinni í minni endurgerð þá hjálpar það til að hafa svona meistaraverk til hliðsjónar þegar maður gerir upp árið. Géricault byggði myndina á þeim atburðum þegar freigátan Medúsa fórst undan stönd vestur Afríku 5. júlí 1816. 147 manns komust á flekann sem var í fyrstu togaður áfram af björgunarbátum en síðan látinn sigla sinn sjó. Aðeins örfáir lifðu af 13 daga á reki þar til þeim var bjargað.
Kannski líður okkur vesalingum hér á Íslandi eins og björgunarbátarnir hafi yfirgefið okkur og við þurfum að láta reka í von um kraftaverk. Við héldum alltaf að vinir okkar myndu draga okkur að landi. Eða hvað?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Facebook
Athugasemdir
Flottar teikningar hjá þér ....
Agný, 15.1.2009 kl. 13:12
Yndislegar myndskýringar! Þú ættir að sjá um forsíðu Moggans á hverjum degi! Frábært.
Baldur Gautur Baldursson, 26.1.2009 kl. 17:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.