Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
12.1.2009 | 18:19
Medúsa flekinn
Það er ekki seinna vænna að flagga áramótamynd hér á blogginu. Ég byggði áramótamyndina fyrir Viðskiptablaðið á einhverju mesta snilldarverki listasögunnar, Medúsa flekanum eftir Géricault.
Þó ég nái aðeins að enduróma brotabrot af snilldinni í minni endurgerð þá hjálpar það til að hafa svona meistaraverk til hliðsjónar þegar maður gerir upp árið. Géricault byggði myndina á þeim atburðum þegar freigátan Medúsa fórst undan stönd vestur Afríku 5. júlí 1816. 147 manns komust á flekann sem var í fyrstu togaður áfram af björgunarbátum en síðan látinn sigla sinn sjó. Aðeins örfáir lifðu af 13 daga á reki þar til þeim var bjargað.
Kannski líður okkur vesalingum hér á Íslandi eins og björgunarbátarnir hafi yfirgefið okkur og við þurfum að láta reka í von um kraftaverk. Við héldum alltaf að vinir okkar myndu draga okkur að landi. Eða hvað?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2008 | 18:53
Til hamingju Íslendingar
Árið 2007 tók ég þátt í að fegra ímynd Landsbankans. Mér hlaust sá heiður að teikna Hátíðaseríu Landsbankans það árið. 10 hlaðnar opnumyndir, fullar af galsa, gleði, gríni og sögulegum fróðleik. Til birtinga í helstu dagblöðum landsins. Flottara illustrationdjobb var ekki hægt að fá á Íslandi. Meginþema myndanna eru hamingjuóskir til Íslendinga vegna hátíðadaga landsmanna. Konur fá hamingjuóskir vegna 19.júni, hommum er óskað til hamingju með hinsegin daga og verkalýðurinn fær knús í tilefni af 1. maí svo eitthvað sé nefnt.
Ekki hvarlaði að mér að þarna væri ég að taka þátt í að byggja upp óþarflega mikið traust almennings á banka sem ekki væri traustsins verður. Ég er viss um að sama verður sagt um hið góða fólk í markaðdeild Landsbankans og á auglýsingastofunni Góðu fólki, sem vann með mér að verkefninu. Himininn virtist heiður og blár og ekkert nema gott um það að segja að bankinn skyldi hafa dug í sér að dæla út hamingjuóskum til þeirra sem áttu það skilið. Vera með okkur í að búa til betra samfélag. Ekki það að ég hafi ekki haft efasemdir um þróun íslensku bankanna. Í dagdjobbinu mínu fyrir Viðskiptablaðið og 24stundir var ég fullur efasemda eins og sjá má á þessari fiskamynd mynd frá því upphafi árs 2007.
Ég var býsna ánægður með útkomuna á hátíðaseríunni. Plaggötin hanga enn uppi á vegg hjá mér á vinnustofunni, en með með hverjum deginum verður ankanalegra að horfa upp á kveðjuna; Til hamingju Íslendingar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.12.2008 | 12:39
Endurlífgað blogg
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)